For luck-rub my belly

Buddha-Belly

28.01.2008 21:39:48 / Magga

Kennsluferlinum lokið og tískuþátturinn er að hefjast

Stelpan er hætt að kenna og er búin að röfla yfir lágum launum í fjölmiðlum landsins. Gat ekki neitað tilboði sem ég fékk einfaldlega vegna launanna og jú, ég lít á þetta sem spennandi verkefni. Á næstu dögum tek ég við hlutverki verslunarstjóra og byrja starfið á að fara til Kaupmannahafnar á tískuvikuna þar og innkaup fyrir búðina. Mun betra en að láta hrækja á sig, sparka í sig, bíta sig og klóra.....já, það gerist í skólastofum landsins. Á samt eftir að sakna krakkanna, þau eru svo ótrúlegir karakterar, verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni. Ég efast um að ég fari í kennslu aftur, allavegana ekki í Reykjavík og ekki á þessum launum sem boðið er upp á.

ÍkveikjuGullan hefur ekkert látið sjá sig og er greinilega farin að stunda sína atvinnumennsku annarsstaðar. Ég er ótrúlega ánægð með það. Það eru örugglega ekkert gott að liggja á bakinu í eldiviðnum og ekki geta farið í sturtu til að skola út á milli kúnna. Innsiglið er farið af íbúðinni og núna bíð ég eftir að eigendurnir fari að moka út, því að brunalyktin er orðin frekar þreytt. Get ekki beðið eftir að æsa mig á húsfundinum sem haldinn verður í vikunni. Ef það verður ekki eitthvað gert þarna þá skulu þessir menn fá að kaupa íbúðina mína, því ég ætla ekki að búa í þessu Harlem umhverfi lengur og ég efa að ég geti selt íbúðina mína fljótt og örugglega með leiguíbúð íkveikjuGullunnar fyrir ofan mig. Þrátt fyrir svartsýni mína þá get ég ekki annað en verið jákvæð og ligg yfir fasteignaauglýsingum.....skoðandi íbúðir í Mosfellsbænum, já í Mosfellsbænum. Veit að ég hótaði því einhverntíman að ég ætlaði mér aldrei að flytja þangað aftur og ætlaði mér alltaf að búa í Vesturbænum. Núna hef ég fengið nóg af blokkarmenningu Vesturbæjarins og hef engan áhuga á að búa í úthverfum Reykjavíkur, svo ekki sé talað um þann sem að stýrir borginni. Núna er það bara sveitalífið sem heillar.

Allavegana frá og með miðvikudeginum verður minn vinnustaður hin yndislega Kringla endilega kíkja á mig og smella kossi á minn fagra vanga.

Óver end át
Fyrrverandi kennslukonan


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 12:29:37 / Magga

Allt á fullu í Harlem

Eftir rólegan og yndislegan tíma í mínum dásamlega Harlem stigagangi varð allt vitlaust um helgina. Um jólin gleymdi ég öllum þessu áhyggjum mínum um hnífabardaga, slagsmál og furðulegustu rifrildi í stigaganginum hjá mér og þau símtöl sem ég hringdi á lögregluna. Var algerlega hætt að spá í þessum mönnum sem sátu út í bíl á bílastæðinu öll kvöld og fylgdust með mannaumferð við húsið. Var löngu búin að gleyma ólíklegustu mönnum sem þáðu forvitnilega þjónustu í íbúð einni í stigaganginum......þeir voru 100% að fá sér nudd.....EINMITT. Jólin liðu bara áfram, það snjóaði, það rigndi og stigangangurinn fór á flot því að Gullarnir fyrir ofan mig gleymdu að þrífa niðurfallið á svölunum og allt fylltist, sem betur fer slapp allt hjá mér. Það hvessti svo og kólnaði og allt var í himnalagi í Harlem svo kom kornið sem að fyllti mælinn hjá annars dagfarsprúðri manneskjunni mér. Slökkviliðið, sjúkrabílar og lögreglan var mætt fyri utan hjá mér, eldhrædda manneskjan ég hljóp fram á gang og mætti þá 4 reykköfurum sem hlupu upp, brutu upp hurð og hófu störf. Þeir stóðu sig eins og hetjur og þeim ásamt þeim sem hringdi á slökkviliðið að þakka að ekki fór verr. Það var einkennileg tilfinning að fylgjast með, ég var þó ekki í neinni hættu í minni íbúð og fékk að vera þar kyrr á meðan barist var við eldinn. Að endingu var íbúðin innsigluð og rannsóknarlögreglan var mætt á sunnudaginn til þess að forvitnast um íbúðina. Loksins fékk ég uppreisn æru og tæmdi úr skálum reiði minnar og kallaði "NuddGulluna" ýmsum illum nöfnum og einnig leigusalana. Nota Bene fyrir einu og hálfu ári síðan var bensínsprengju kastað inn í sömu íbúð. Nú hef ég fengið nóg af veru minni í þessu Harlem ástandi og er farin í hart við leigusalana og leigjendur. Nú svífur reiði Möggunar yfir vötnum.

Ég er samt á lífi, þrátt fyrir að hafa bjargað öðrum "nuddGullum" frá hnífum og borðum, það bjargaðist allt hjá mér í eldinu en ég er óörugg á mínu eigin heimili og það er óþægileg tilfinning.

Rannsóknarmaður Brunamála OUT

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 11:27:47 / Magga

Jólasturlunin að hellast yfir prinsipesuna

Jólafílingurinn kemur snemma til mín í ár. Í síðustu viku skreytti ég skólastofuna með bekknum mínum, við brutum saman stjörnur og límdum í gluggana, hengdu upp jólaseríu a la 5.bekkur (ekki alveg eins og ég myndi hafa það;) og að sjálfsögðu hlustuðum við á jólalög en þau voru a la Basshunter, ákaflega ekki skemmtilegt. Í dag föndrum við og skreytum jóladagatalið okkar, svo verður desember undirlagður af allskonar jólaglensi hér í skólanum.
Að sjálfsögðu mun Kringlan fá að njóta mín í jólamánuðinum ekki bara það að ég muni eyða dágóðum tíma í að finna jólagjafir handa mínum nánustu heldur stend ég margar jólavaktirnar í búðinni. Á milli vinna finn ég svo góðan tíma til að gera jólasmákökurnar, jólaföndrið, jólahreingerninguna og allt hitt jóla.
Þrátt fyrir þetta gífurlega jólaskap sem komið er í mig þá dettur mér ekkert í hug til þess að gefa í jólagjafir. Er algjörlega tóm í hausnum. Jólagjafirnar í ár verða þó útpældar og huggulegar fyrir hvern og einn. Get ekki beðið eftir að setjast niður í kósýheitum og pakka inn gjöfum. Eins og mér finnst gaman að pakka inn þá hræðist ég það ofboðslega mikið að þurfa að pakka inn í búðinni, vonandi biður enginn eiginmaður mig um að pakka inn fyrir sig......ég bendi honum þá bara á innpökkunarborðið fyrir framan Hagkaup. Ég get ekki borða og dúllerísbönd. Ég reyni allavegana.

Annars er allt í gúddí múddí á heimilinu
óver and át


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 14:55:23 / Magga

Týnd en er samt að finnast

Í stað þess að vera að undirbúa dag íslenskrar tungu eða skemmta mér yfir nokkrum vel stafsettum æfingum þá ákvað ég í íslenskri eymd minni að rita hér nokkrar línur. Hef þó aðallega í hyggju að dásama líf mitt og jafnvel minnast á hvað aðrir séu nú ágætis fólk.
Ég er yndisleg, ég er frábær og ég er dásamleg.
Börnin mín 18 (voru 15 til að byrja með, fjölgaði pínu hjá mér) eru orkumikil, tala hátt og skýrt og eru oftast frekar fyndin.
Ég get ekki beðið eftir að jólafríið komi.
Sambúðin hjá mér og Lover Loverson gengur vel. Ég hef aldrei eldað jafn mikið á Rafha eldavélinni frá 1946 og nú. Mér finnst nú að Rafha ætti að gefa mér nýja eldavél og nota hina sem auglýsinu um endingargott eldhústæki.
Lover Loverson er orðinn mjög vel húsvaninn, setur í þvottavél, býr um rúm, vaskar upp og spilar tölvuleiki (Elín, við hefðum ekki átt að gera svona mikið grín af þessu með Sigfús og Grétar.....ég uppsker algerleg það sem ég sáði í denn).
Afmælið hjá pabba heppnaðist frábærlega, allir virkilega ánægðir með söngatriði lúllanna.
Svo er ég bara almennt frábær, lifi frábæru lífi, á frábæra vini og er algerlega týnd í frábæru lífi ástar og hamingju...........og ég leyfði mér það. Er samt að hugsa um að fara að finnast og leyfa öðrum en Lover Loverson að njóta þess hversu frábær ég er.

Að endingu elsku Helga Stína til hamingju með prinsinn sem fæddist þann 05.nóv. Gangi þér vel í móðurhlutverkinu.

Óver end át (í tilefni af degi íslenskrar tungu á morgun)

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 12:11:55 / Magga

....mín hinstu orð

Stelpan er á lífi, alveg hreint ágætis lífi þrátt fyrir viðbjóðslegt kvef og sprungna hljóðhimnu. Er algerlega hætt að pirra mig á því, þetta gerist reglulega hjá mér. Væri samt alveg til í að fá smá svefn á nóttinni en ekki viðbjóðs köfnunarhósta.
Það hafa einhverjar prímadonnur verið að kvarta yfir skrifleysi mínu hér á síðunni. Stelpan hefur bara verið upptekin, upptekin við vinnu (enda í 2 vinnum), við veikindi (viðbjóðs veikindi), almenn heimilisstörf og að húsvenja sambýling minn. Þessi vika mun einkennast af löngum og ströngum söngæfingum og almennum leikhúsæfingum. Stór afmæli föður míns er á laugardaginn og að sjálfsögðu mun ég troða þar upp ásamt vel völdu fólki. Þetta verður síðasta stórafmælið í bili eða þangað til 30.nóv.

Allavegana nenni þessu ekki lengur.

Over and goodbye

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 17:53:15 / Magga

Menningarplássið Reyðarfjörður

Ætli maður verði nú ekki að henda inn nokkrum línum hérna. Er alveg hætt að nenna þessu enda hef ég lítinn sem engan tíma í þetta. Þrátt fyrir öll hin góðu "kennarafrí" þá gefst lítill tími í svona skriftir þegar ég er við tölvu. Það tekur víst sinn tíma í að undirbúa metnaðarfulla og flotta kennslu. Líkt og einhver spekingurinn sagði....þetta er það sem ég valdi mér að gera ....og svo sagði hann ýmislegt hálvitalegt að mínu mati en ég ætla nú ekki út í þá sálma hér.

Síðustu dagar hafa verið frekar sérstakir, ánægjulegir en sérstakir. Ákvað á fimmtudagskvöldinu að skella mér til Reyðarfjarðar eftir vinnu á föstudeginum, skoða menninguna, byggðina og mannlífið sem þar blómstrar. Skellti ýmsu í tösku, setti á mig gönguskóna og hélt af stað. Eins gott að ég var í ágætis gönguskóm því í annarlegu hugarástandi mínu missti ég næstum af vélinni. Alltaf töff að vera pæjan sem lætur fulla flugvél bíða eftir sér.
Egilsstaðir tóku vel á móti mér, með opnum örmum og þéttum kossi. Alltaf þegar ég kem til Egilsstaða verður mér hugsað um ferðalagið þegar ég og Ægir fórum með slatta af bjór og annan vökva í bústað ásamt fríðu föruneyti. Bústaðarferðin var fjörug en heimferðin var viðbjóður. Allavegana eftir þéttann koss var ferðinni heitið á Reyðarfjörð. Mín fyrsta heimsókn í það virta menningarpláss. Get ekki sagt að fjörðurinn hafi heillað mig en það skipti engu því ég var ekki að heimsækja fjörðinn. Ótrúlega fyndið að fylgjast með mannlífinu þarna, ekkert nema Pólverjar á ferli í gulu vinnuúlpunum sínum á leiðinni í ríkið.....að sjálfsögðu. 
Kom svo í menninguna á sunnudeginum, virkilega sæl og ánægð með frábæra helgi.

Hversdagslífið hefur svo tekið við, reyna mitt besta í að mennta hinn unga lýð.

Á laugardaginn verður svo stór afmæli Elínar og veit ég að það verður stuð. Eins og sannri prinsessu sæmir mæti ég örugglega tískulega seint og læt taka eftir mér þegar ég mæti á svæðið.

Svo er það bara biðin í næstu Reykjavíkurheimsókn.

Óver and át


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 20:39:23 / Magga

Lover Loverson

Stjörnuspá dagsins...NAUTР(á vel við þessa dagana)

Þú elskar fólk og fólk bregst vel við þeirri afslöppuðu athygli sem þú veitir því. En ef einhver sérstakur er í spilinu, verður hann að fá alveg sérstaka athygli.

 Akkúrat núna á ég að vera að undirbúa foreldraviðtöl eða samráðsfundi eins og viðtölin eru kölluð í mínum skóla. Erfitt að koma sér að verki. Ætlaði að ljúka þessu af eftir skóla í dag en ég sofnaði við hlið Fjólunnar minnar. Hún að ná úr sér þreytunni eftir næturvakt og ég að ná úr mér uppsafnaðri helgarþreytu. Henti svo eiginkonunni úr rúminu og sagði henni að fara að skúra svo ég fengi frið til þess að undirbúa en að sjálfsögðu fer ég bara að hangsa á netinu. Erfitt að koma sér í vinnugírinn eftir helgina.

Elín mín yndisfríðust átti afmæli fyrir stuttu og þar sem ég hef ekki sest við bloggskrif síðustu daga þá fær hún senda blogglega afmæliskveðju hér með. Man þegar ég sá Elínu fyrst, hún fór rosalega í taugarnar á mér eins og allt hennar samstarfsfólk á þeim tíma. Mikið var ég nú fegin að hafa gefið stelpunni tækifæri því öðrum eins gullmola hef ég ekki kynnst. Stelpan er stórkostlegur einstaklingur og þykir mér endalaust vænt um hana. Hlakka til að halda upp á árin með henni í afmælispartýinu sem verður mjög líklega eins og karakterinn Elín, stórbrotið afmæli. Elín þú ert eins og selurinn, sem syndir niður Skólavörðustíginn. Þú ert mér kær.

Hef frá voða litlu að segja eins og er, luma á ýmsu en ætla ekki að fara að segja frá því alveg strax.:lol:

Ætli það sé ekki best að fara að gera eitthvað í þessum vinnuundirbúningi, það þýðir ekkert að hangsa fyrir öll þessi laun sem ég fæ.

Óver end át


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 16:02:04 / Magga

Einstæð tveggja barna móðir

Hlutverk mitt síðustu daga er að vera ábyrg "móðir". Ég hef dvalið á heimili systur minnar og séð um drengina hennar. Þeir sem þekkja til vita að þetta er virkilega krefjandi verkefni. Ekki nóg með að drengirnir séu fjörugir þá er í fjölskyldunni hundur sem að mínu mati er pínulítið sérstök. Drengirnir hafa verið í minni umsjón síðan á miðvikudaginn og hefur allt gengið eins og í sögu. Ég virkilega lifi mig inn í hlutverk einstæðu 2 barna úti vinnandi móðurina. Hef þurft að senda í pössun til ömmu og keyra um kvöld með börnin til RVK í náttfötunum hálf sofandi í bílnum. Hef fengið næturpössun hjá ömmu vegna starfsdags í leikskólanum og tekið þann eldri með mér í vinnuna og notið þess svo inn á milli að vera með ofurgúddunum.
Þar sem drengirnir eru heima allan daginn í dag og ég tók ekki vinnuna með mér heim þá hef ég haft nægan tíma til þess að gera eitthvað með brjálæðingunum. Ég hef sett saman tæknilegóundur (eldspúandi dreka og tvöfalda valslöngvu) á þeim tíma sólahringsins sem ég er oftast meðvitundarlaus á laugardegi. Eftir byggingaverkfræðina þá tók ég eldhúsið í gegn og fyrst það var orðið hreint og fínt þá ákvað ég að skella í skúffuköku sem heppnaðist frábærlega vel. Núna langar mig helst að leggjast upp í rúm og sofna en það er nóg eftir af deginum og hlutverki mínu er ekki lokið. Á morgun get ég hrisst þessa einstæðu 2 barna útivinnandi húsmóður af mér og hent mér í sófann heima hjá mér. Haldið áfram að lifa mínu tilbreytingarlausa lífi með honum Tomma Tómasi.

Sem betur fer hefur Fjólan verið heima hjá mér undanfarið og hugsað um Tomma Tómas. Það virðist svo vera að brúnn loðinn skógarköttur sé að leggja son okkar í einelti. Þarf að fara að uppræta þessa hegðun kattarins.

Ég á svo yndislegar vinkonur. Þær eru bara með svarta beltið í krúttmensku. Þar sem þær vita hversu hræðilegt ástand heimilisins hjá mér er, fjármálalega séð. Þar sem mín himin háu kennaralaun dugðu ekki fyrir reikningum né öðru. Þá hafa þær verið að koma í heimsókn og lauma að mér alls kyns mat. Þvílíkir gullmolar. Elska þessar stelpur. Vonandi eiga fleiri svona vinkonur sem láta það nú ekki eftir sér að hugsa vel um vináttuna. Takk fyrir allt stelpur.

Er enn pínu bitur yfir því illa metna námi er ég fór í. Er enn pínu bitur yfir laununum mínum.
Kennslan á vel við mig, mér finnst það ofboðslega skemmtilegt. Vildi að ég fengi almennileg laun fyrir þetta. Er sífellt að skoða atvinnuauglýsingar, ekkert sem heillar eins og er. Sá að vísu áhugavert starf auglýst um daginn en ég get ekki gert börnunum mínum það að fara frá þeim. Þetta er svo erfitt og flókið mál.

Jæja......ætli það sé ekki best að ég fari að hugsa um drengina og heimilið.

Knúses og Kisses


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 18:47:21 / Magga

Pirringur í haustlægðinni

Var að lesa frétt á mbl.is að Kennarasambandið lýsi áhyggjum af ástandi í leik- og grunnskólum. Skil ég vel þessar áhyggjur Kennarasambandsins því ástandið í leik og grunnskólum er langt frá því að vera gott. Misgóðir og mæltir bloggarar blogga svo um fréttina og verð ég virkilega reið að lesa þennan hálvitaskap sem fólk lætur út úr sér. Fólk sem veit lítið sem ekkert um kennslu en dregur þekkingu sína af því að hafa komið börnum sínum í gegnum grunnskólakerfið. Þetta Fólk veit örugglega ekkert um allan þann undirbúning sem felst í starfinu, alla þá fundi sem þarf að sitja, allt það skipulag sem þarf að hafa á hreinu og alla þá verkefnavinnu sem þarf að undirbúa og yfirfara svo ég tali nú ekki um aðgerðir og úrlausnir fyrir einstök börn. Þegar fólk kemur svo með komment á borð við þessi þá verð ég alveg arfavitlaus.
"Fyrst er að vinna fyrir þeim launum sem maður hefur, áður en beðið er um meira"
"Við ætlumst til þess að fá kennslu fyrir þessi laun sem greidd eru kennurum,  en það virðast sumir þeirra ekki skilja,  heldu halda að vinna þeirra sé í því fólgin,  sitja við kennaraborðið bak við fartölvuna sína og hanga á  netinu"
"Hvað varðar sumarfrí og annað þá má vel færa rök fyrir því að þau séu stundum löng"
"Það er löngu kominn tími til að við fáum eitthvað  fyrir þessi laun sem þeir þiggja"

Ég er alveg búin að vinna fyrir mínum 128.000 kalli (sem voru mín mánaðarlaun 01.sept) á einum góðum degi og ég er sko alls ekki með móral fyrir að þiggja þessa himin háu upphæð. Væri til í að koma þessu Fólki inn í skólann og vinna þá vinnu sem við kennarar leggjum okkur fram við að gera vel. Yrði örugglega fyrsta fólkið til þess að fara vælandi heim yfir álagi. Ef þetta fólk vill fá almennilega kennara í störfin og að börnin þeirra fái viðunandi kennslu (sem ég veit að er fyrir hendi í flest öllum skólum) þá ætti það að styðja kennara í launabaráttunni svo að gott fólk hverfi ekki frá í önnur störf og að ný útskrifaðir kennarar, fullir af hugmyndum og eldmóði sækist í störfin.
Ég t.d lít á mig sem frábæran kennara, ber mikla umhyggju fyrir nemendum mínum í námi og leik. Hef brennandi áhuga á kennslu en vegna óviðunandi launa er ég að leita mér að nýju starfi þar sem að mannsæmandi laun eru í boði og ég geti lifað mannsæmandi lífi út mánuðinn. Í mitt skarð kemur svo líklega leiðbeinandi með enga menntun. Það er kannski það sem þetta Fólk vill. Ómenntaðan einstakling til þess að kenna barninu sínu, því að kennarinn sem að hætti var með frekju og vildi fá hærri laun fyrir vinnu sína.
Vil líka benda fólki á að þau alltof löngu sumarfrí og jólafrí sem kennarar fá eru dagar sem við höfum unnið af okkur. Hvenær ætlar fólk að skilja þetta. Get líka alveg nefnt það að flest allir kennarar vinna á einhvern hátt tengt kennslu í sínum fríum.
Hvernig væri að styðja kennara einu sinni í baráttunni í stað þess að blóta þeim og agnúast út í þá.

Allavegana eru fáránlegir hlutir orðnir munaðarvara hjá mér eftir að ég gerðist kennari.

Óver and át
Maggan hasiteraður kennari

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 19:08:48 / Magga

Brjóstahaldaralaus í leggins

Hef legið í þunglyndi síðan ég fékk minn fyrsta launaseðil sem kennari. Ætla mér ekki að ljóstra upp þessum himinháu kennaralaunum því ég skammast mín fyrir þessa upphæð. Einhverjir segja þó að ég muni fá gott jólafrí og enn betra sumarfí og ætti því ekki að vera að kvarta. Ég býst þó við að mín jóla og sumarfrí eigi eftir að vera þakin í vinnu til þess að vinna upp auraleysi vetursins. Alger skömm að maður sé að þræla sér út fyrir þessa smáaura. Ætli ég verði ekki gjaldþrota eftir veturinn, búin að selja ofan af mér og farin að leigja mér ódýran pappakassa í einhverju portinu eða þá fæ ég að krassa hjá Fjólunni í Konukoti. Sorglegt að upplifa að menntun mín (5 ára háskóla nám) sé eins illa metið og raun ber vitni. Hef þó ákveðið að skera mig ekki á púls í þessari launalægð minni, rifa upp um mig buxurnar, smella brjóstarhaldaranum á mig og finna mér mann sem getur haldið mér uppi, svo ég geti unnið við það sem mér finnst gaman og er hrikalega góð í (þó ég segi sjálf frá;). Mér gengur hálf erfiðlega að finna þennan ríka (þrátt fyrir að hann megi vera ljótur, feitur, leiðinlegur og vond lykt af honum) einhvernvegin gufa allir karlmenn upp sem hafa komist í snertingu við mig, galdrakvendið ég.

Það eina sem ég geri þessa dagana er að vinna, kem heim um 18:00 eftir skrautlega daga með bekknum mínum, sest við borðstofuborðið og held áfram að vinna. Helgarnar fara svo í að undirbúa komandi vikur. Tók mér samt gott frí frá vinnunni þessa helgi. Fór í frábæran dinner á Miðnesheiði á föstudagskvöldi. Fjólan, þessi snilldarkokkur matreiddi dýrindis og vel eldaða kjúklinga, sósur og dýrindis meðlæti. Frábær dinner með eiginkonunni og tengdaforeldrum.....hahahahhahahaha:lol:
Í gærkvöldi skrapp ég með vísitöluforeldrunum á tónleika. Hin vinnan gaf mér tvo miða á Chris Cornell og fyrst ég fékk þá nú frítt þá skellti ég mér með hinum rokkurunum. Mikið þoli ég ekki karlmenn með hárið í tagli......slitna lubba í tagli. Hélt líka að það væri algerlega out að vera með svona rakað undi og lubba yfir......svona svipað eins og skólabræður mínir voru með á fermingarmyndunum sínum. Þrátt fyrir alla þessa lubbabræður í höllinni sá ég glitta í í nokkra myndarlega í höllinni.

Framundan eru svo vonandi fjörugir tímar, því nær sem líður að mánaðarmótum eykst hnúturinn í maganum yfir að þurfa að sjá næsta launaseðil. Nema að sá ríki verði búinn að bjóða mér á deit og gefa mér hlut af milljónunum sínum. Draumur í dós.

Ætli ég fái ekki betur borgað að vinna í ávaxta og kjötborðinu í Nóatúni??????

Ég veit hundleiðinlegt blogg........en ég er frústreraður kennari, brjóstahaldaralaus og í leggins það verður bara ekki skemmtilegra hjá mér.

ÓVER end ÁT


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 21:33:32 / Magga

Þvottanesheiði

Stelpan er komin til landsins eftir þetta fína frí í Þýskalandi og Hollandi. Heimsmeistaramótið var mjög skemmtilegt, gaman að fylgjast með hvað þetta er svaðalegt batterý. Bróðir minn stóð sig með sóma og var ég mjög stolt af stráknum.
Tók eitt gott skrall með þeim þýsku og fékk að smakka á svaðalegum pólskum buffalo gras vodka. Stelpan varð frekar hressssssssuð af vodkanum. Þrátt fyrir mikið skrall og ágætis ball var ég vöknuð 8 á laugardagsmorgni og mætt á mótsvæðið um 8:30 tilbúin til þess að horfa á fjörgang og fimmgang.
Þrátt fyrir gott frí og ferðalag var rosalega gott að komast heim. Byrjaði að vinna daginn eftir og hef verið sveitt við að undirbúa kennsluna. Hitti nemendur mína í dag og leist rosalega vel á hópinn. Einn kvatti mig með þeim orðum "Ég held að þú eigir eftir að verða afbragðs kennari" alltaf gott að heyra svoleiðis. Á morgun er svo fyrsti kennsludagurinn, vottar fyrir örlítlum kvíðahnúti í mallakút en þetta verður ekkert mál fyrir stelpuna mig.

Fór á hið fínasta deit á sunnudaginn, bíó og miðbæjarrölt. Alltaf gaman að fara á deit með skemmtilegum mönnum.

Í þessum skrifuðu orðum sit ég hjá Fjólunni á Miðnesheiði, bíðandi eftir að að þvottavélin klárist. Ég fór sem sagt með fullan poka af þvotti til Keflavíkur. Eftir langt ferðalag var nóg af skítugum þvott á heimili mínu.......sonur minn nennir ekki að setja í þvottavél. Fínt að nýta amerísku vélarnar, setja í 2 vélar í stað þess að setja í 14 hjá mér. Fyrir utan það að þær lituðu á efri hæðinni taka allar snúrurnar í þurkkaðstöðunni.

Allavegana, veit ekki hversu mikið ég nenni að blogga á næstunni.

knús og kisses
kennslukonan magga


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 10:35:05 / Magga

Hollenskt Hótelblogg

Alltof heitt i Hollandi fyrir hud sem hefur verid lokud inn i Kringlu i allt sumar.

Endalausar hestaumraedur a thysku......er ordin mellufaer i ad vita hver er undan hverjum.

Alltof heitt

Frunsan Reynir hefur ferdast med mer um allt, skodad sig um i thyskalandi og aetlar ad eg held ad vera eftir her i Eindhoven. Ber hana med stolti en eg mun ekki sakna hennar.

Keppnin byrjar a morgun og tha mun brodir saell rida um a Litfagra fra....blehh...man ekki. Hann keppir i einhverju kynbotadoti.

Hef ekki enn sed treklossa og tulipana.....bara hjolandi Hollendinga

Er steikt af solinni.

Grundarfjardarhelgin var snilldin eina. Klifradi upp tank til ad ganga i augun a manni, sat i fjallshlid og raeddi framtidina, verd i bleiku thegar eg gifti mig, sumarhus og vinnustofa i Flatey, 2 born og eg veit ekki hvad. Thratt fyrir thessar suru umraedur endadi helgina yndislega og keyrdi eg threytt og thunn heim adfaranott manudagsins og for ad sjalfsogdu ad vinna a manudagsmorginum. Var samt med bros a vor eftir goda helgi.

Helvitis hitinn.......

Kvedja til allra a klakanum.......handa hverjum a eg ad kaupa treklossana??????
Sakna allra.....knus og kossa til ykkar og tha serstaklega thin

BRUNARUSTAMAGGAN


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 11:20:58 / Magga

Búðakassablogg

Þar sem að Kringlan er steindauð, fyrir utan nokkra hressa ung skáta sem ætla sér ekki að versla hjá mér, þá ákvað ég að stelast örlítið og blogga búðakassablogg......vonum bara að enginn komi og versla svona rétt á meðan ég misnota búðakassann.
Þrátt fyrir blíðuna undanfarnar vikur þá er ég vibjóðslega hvít og langt frá því að vera útitekin eftir góðar sumargöngur og annað sumarbrölt. Kringlan er ekki að gera góða hluti fyrir mig, er bara hvít og eyði alltof miklum pening í matar og kaffihléum. Það styttist nú í sumarfríið mitt, það er alveg að koma að Þýskalands/Hollandsferðinni, týpísk ég að það verði svo rignin og viðbjóður allan tímann, ég fæ allavegana smá sól í Grundarfirðinum........Það er alltaf sól þar um hátíðarhelgina. Eftir mitt síðbúna sumarfrí verður sumargleðin búin og ég fer að undirbúa mig fyrir kennarastarfið......spennandi. Það er nú ekki langt síðan að ég sagðist aldrei ætla að fara að kenna...en svona geta hlutirnir breyst.  Það er einhvernvegin allt að breytast þessa dagana.

Kannski sumarfiðringurinn sé mættur !!!!!!!!!!!!!!!!

Búðarkassinn er ekki bloggvænt apparat.....ætti líka kannski bara að koma mér í að brjóta saman boli, laga herðatré eða fylla á.
Afhverju bjóða konur ekki góðan daginn.....fýlugullur.

Mæli að lokum með hátíðarhelgi Grundfirðinga, hressandi helgarskemmtun og alltaf gott veður.......og þar verð ég.

Búðarkassablogg OUT

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 21:03:39 / Magga

Táfýlusumarið mikla

Sumarið er tími táfýlunnar allavegana á mínum bæ. Ég engist um í eigin táfýluviðbjóði og algerlega ofbýð sjálfri mér og öðrum sem í kringum mig eru er ég fer úr skónum eftir heitan og sveittan vinnudag. Hlaupin um búðina, lagerinn og sólin í matar og kaffitímum magna upp sveittar tær mínar og virðist sem ekkert ráði við hinn viðbjóðslega þef táa minna. Sumarið 2007 er táfýlusumarið mikla. Ég sem hélt að ekkert spennandi myndi gerast í sumar.

Hef minnkað við mig vinnu, nú er ég í Kringlunni alla daga og svo aðra hverja helgi á leigubílastöðinni....hitt var aðeins of mikið. Var alveg hætt að hitta vini og fjölskyldu og "sonur" minn farinn að afneita mér og bjóða öllum heimsins köttum á heimili okkar. Núna hef ég tíma til að hitta skemmtilegt fólk, af Gulla heimilið, hugsa um "soninn" og stunda hina sívinsælu íþrótt skemmtistaðasleikir.

Er orðin mega spennt fyrir sumarfríinu í Þýskalandi og ferðinni yfir til Hollands á heimsmeistaramótið. Fyrst verður þó farið í Grundarfjörðinn í heimsókn til fósturforeldranna og tekin nokkur vel valin spor á Grundarfjarðarhelginni. Hef ekkert farið til Grundarfjarðar eftir að ég flutti, sakna fóstuforeldranna ótrúlega mikið. Veit samt ekki hvort að þau sakni mín, ætli matarkarfan hjá þeim hafi ekki lækkað um helming......átvaglið ég. Verður bara kózý að sitja á svölunum hjá þeim og gæða sér á köldum bjössa og njóta stundarinnar. 100.000 saknaðarkveðjur til ykkar kæru fósturforeldrar.

Ef þú lendir í vandræðum þá kallaru bara á hana Dísu......veit ekkert hver þessi Dísa er en hún tengist eitthvað Nizza súkkulaðinu. Ég gæði mér nú einstaka sinnum á Nizza á vandræðalegum mómentum eða þegar hin ýmsu vandræði hellast yfir mig. Gleymi alltaf að kalla á Dísu, kannski hún geti klárað að af Gulla heimilið og ala upp "soninn" og Valgerði sem að dunda sér við að brjóta hina ýmsu hluti heima hjá mér. "Sonurinn" henti náttborðslampanum niður og mölvaði hann, Valgerður kallaði yfir sig 7 ára ógæfu með því að brjóta nýja spegilinn minn, eða er ógæfan á mér að því að ég borgaði fyrir spegilinn og hann var heima hjá mér.......eða hvað??????????? Spurning um að ég kalli á Dísu.

Annars er ég hvít eftir sólardagana og horfi engum öfundaraugum á sólbrennda íslendinga er þeir koma til mín í búðina og versla sér sólardressin.......vonandi fer að rigna á þetta pakk, þá kaupir það kannski helvítis peysurnar.

Allavegana............Hvar í andskotanum er ég og er það stutt frá Kringlunni og pabbi gaf mér ekki brjóst í fermingagjöf, algerlega 100% náttúrulegt.

Kisses and hisses

» 6 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 17:21:45 / Magga

Að vinna, það er eitthvað minna....en að éta það er það sem menn geta

Dagarnir fljúga áfram hjá stelpunni mér og mér finnst eins og sólarhringurinn styttist á hverjum degi, held að hann sé bara kominn niður í 12 tíma hjá mér. Ég held áfram að vinna eins og vitleysingur, farin að heiman kl 09:00 og kem heim um 00:30 en um helgar breytist þetta töluvert og þá er ég yfirleitt að alla helgina og næ kannski 4-5 tíma svefni frá föstudegi til sunnudags. Helvíti dugleg stelpa ekki skrýtið að vikurnar fljúgi áfram hjá mér. Ég get þó ekki kvartað yfir þessu álagi því þetta er mitt val að vinna svona mikið, enda verður bara að standa við sitt, borga reikninga og lifa mannsæmandi lífi. Er ótrúlega ánægð í dag, þrátt fyrir mikla vinnu, hef náð að kynnast fullt af ótrúlega skemmtilegu búðarfólki og mis skemmtilegum mönnum sem eru með svarta beltið í nöldri og tuði.....hahahaha...þeir eru samt yndislegir. Á laugardaginn var búðarpartý, eitt besta partý sem ég hef farið í í langan tíma. Nóg að drekka og borða og allt í boði vinnunnar. Ekki má gleyma að við stelpurnar í Noa Noa tróðum upp fyrir gesti með hinum geysivinsæla lagið What is love með hinum stórgóða söngvara Haddaway (eða hvernig sem það eru nú skrifað) við unnum nú ekki karókíkeppnina en unnum algerlega keppnina flestar ferðir á barinn :)

Fyrr en varir verður hið annasama sumar á enda og ég sest við að reyna að troða visku inn í barnahópinn í Vesturbæjarskóla. Hef heyrt að það sé ótrúlega fjörugur starfsmannahópur þar. Hlakka bara til. Alltaf gaman að takast á við ný verkefni og kynnast nýju fólki.
Hef líka tekið þá ákvörðun að breyta algerlega um menntastefnu, hætta þessu lítilsmetna frítímastarfi sem ég hef menntað mig í og unnið við og fara inn á þá braut að læra stjórnun, mannauðsstjórnun heillar þessa dagana. Það kemur að því að maður sest á skólabekk en ekki fyrr en ég sé fram á það að eiga peninga til að halda áfram að standa við hinar ýmsu reikningsskuldbindingar, það er víst betra.

Styttist í sumarfrísferðina til Þýskalands og heimsmeistaramótið í Hollandi. Var að fá þær fréttir í dag að minn yndislegi bróðir mun keppa á mótinu fyrir Þýskaland. Það verður bara til þess að toppa ferðina. Hann tók sturlaða meri nánast úr sláturhúsinu og sagðist ætla að koma henni á heimsmeistaramótið, strákurinn er svo ógeðslega klár á sínu sviði að hann kom henni áfram. Ótrúlega stolt af stráknum, hann verður sko lang lang flottasti knapinn á svæðinu.

Ætli það sé ekki best að halda áfram að sinna starfinu

Hilsen Kilsen


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20
Tenglar
Tenglar
Tenglar